Hinn fullkomni heimur
Dagsetning
9. febrúar 2012
13.09.2007 14:29:59 / dreymandi

Ég er farin héðan

Ég gefst algjörlega upp á þessu bloggi, það er ekki hægt að skoða það með þráðlaust net, það dettur stanslaust út og aður þarf að bíða í þrjú ár með að sitja myndir inná síðuna.

Svo ég fékk mér mogga blogg www.dreymandi.blog.is 

hún er reyndar en í vinnslu svo ekki hoppa inn á hana fyrr en eftir svona 3 daga það er 16 september.

Kveðja Valey


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 12:55:46 / dreymandi

Skólinn er byrjaður

´

Hæ hæ

Var að lesa síðustu færslu og það er svo mikið af villum í henni, það er alveg hræðilegt, þið verðið bara að afsaka þetta, ég á doldið til að gleyma orði og bókstaf.

Skólinn byrjaði í gær, ég er í 14 manna bekk, það er alveg 5 ár síðan að ég var í bekkjarkerfi síðast. Ég er síðan í fjagra manna hóp, líst mjög vel á hópin minn, við erum tvær stelpur og tveir strákar, ein strákurinn er frá Hollandi og hinn er bara Dani alveg eins og stelpan. við erum 3 kvenkyns í bekknum, ein dönsk og tvær íslenskar, þessi íselnska heitir Þórunn og er um 30 ára og á börn. ég kem mér ágætlega saman við þær báðar, þessi danska heitir Saskia eða e-ð álíka. það verður opin föstudagsbar á föstudag og þá verður rillað og e-ð meira fyrir allar þrjár deildarnar, tölvunarfræðideildina, fatahönnunar deildina og ég man ekki alveg hvernig síðasta deildin er. Það eru bara stelpur í fatadeildinni og meira og minna bara strákar á tölvunardeildinni, svo kynjahlutfallið í skólanum er frekar jaft :)

Ég og hópurinn minn unnum keppni í dag um að gera flottasta, stabildasta og hæssta turnin, okkar var hæstur, flottastur og hann var stabild, kannski ekki alveg sá örrugasti. En við unnum, þetta var svona keppni um hópavinnu og kynnast hópnum sínum betur.

 Ég er mjög ánægð fyrir þína hönd Marta að vera loksins flutt, mig langar líka rosalega að heimsækja þig. Ég kem samt um jólin svo þetta ætti nú að vera allt í lagi :)

Jæja þið meigið endilega komenta, bara segja e-ja kveðju eða deila e-u úr lífi ykkar, það væri æðislegt. Sakna ykkar bless bless :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.08.2007 20:40:08 / dreymandi

Ferðin hingað

Ég komst þó loksins heim :) eftir mjög langa ferð, þetta á að vera svona 2:50 tímar og síðan 4:00 tímar sem er næstum 7 tímar en þetta var næstum því tólf tíma ferðalag. Ég byrjaði á að fara í Icelandair flug sem er svo rosalega nett að legga af stað hálftíma of seint en við lentum samt á réttum tíma. Sat í saga class sæti samt var ég ekki á saga class, og lét fara geðveikt vel um mig :) Síðan lentum við í öben og þar var svo heit ég hélt ég mundi leg niður, ég sá svita dropana leka niður andlit mit, þá sá ég að hugmyndin að fara í lopapeysuna var ekki góð. þegar töskurnar svo loksins komu beið í hálftíma. Síðan var ferðinni heitið út og kaupa lestar miða, var það heppin að þegar ég kom var verið að opna miðakerfið klukkan var um hálf sjö. jæja tók lest að köbenhavns hovedbanegård, fór út og sá hvenær sönderborg lestin myndi leggja af stað. Jæja ég var orðin tilbúin og fór í rétta lest og ferðin gekk bara mjög vel þangað til rétt hjá Óðinsvéum, þá stoppaði lestin í 45 mín, því það varð lítið óhapp lengra í burtu, einhver varð fyrir lest. Eftir þessar 45 min. var ferðinnni heitið til óðinsvé en lestin mundi stoppa, þá þurfti ég að taka aðra lest sem ætlaði að stoppa i kolding, og komast síðan til Sönderborg, en þegar ég kom til Kolding var bara rúta til að keyra mig á leiðarenda. Jæja ég komst þó til Sönderborg, og var mjög sátt við það, en það var alveg stórt vandamál að fina leigubíl í þessum bæ. Ég fór inn í sjoppu þar sem afgreiðslumaðurinn hringdi fyrir mig á leigubílastöð, sem var doldið fyndið, því hann bölvaði leigubílastöðinni út og suður fyrir að vita ekki hvar sjoppan hans er staðsett. En þetta ferðalag tókst þó með herkjum....

Eina fólkið samt sem ég er búin að tala við er afgreiðslu fólk og íðan vinir á msn og skype, leiðist doldið hérna.... Sakna ykkar :*


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.08.2007 13:53:42 / dreymandi

Bless bless

Blessaðir, jæja núna er stundin runnin upp ég er farin til Danmerkur, sjáumst hress og kát seinna, p.s ég ætla að redda mér öðru bloggi fíla ekki þessa speed touch villur.

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.07.2007 18:49:57 / dreymandi

Danmark her kommer jeg

Ég komst inní skólann og fékk íbúðina og núna er ég bara að bíða eftir svari frá lín :) ykkur er öllum velkomin í heimsókn elskurnar mínar  :) sjáumst


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 14:53:30 / dreymandi

Afmæli húrra

 

Varð 21 árs í gær, alveg magnað. fékk fullt af gjöfum, fékk hálfsfesti frá Freyju sem hún bjó alveg til sjálf, eyrnalokka og mynd frá Sturlu sem hann bjó líka til sjálfur. Guðlaug og Haukur gáfu mér Penning og Mamma og Pabbi Gáfu mér danskan pening, núna þegar ég er að fara til danmerkur henntar það mjög vel, en ég fer núna 17 maí með Gullu og Freyju til Danmerkur í helgarferð. Óskar gaf mér alveg fult, bol, bolta, skó og 2 dvd myndir, alveg rosalega flot. Allar vinkonur mínar hringdu í mig eða sendu mér sms og óskuðu mér tilhamingju, það var æði..

Ég er líka búin með prófin mín í dag, gekk vel í síðasta prófinu en ég er nú ekki alveg viss með hin tvö, þetta er svo misjafnt e-ð.

Ég er nánast komin inn í skólan í Sönderborg þarf bara að bíða til júlí og fá opinbert svar. Ég er reyndar ekki búin að fá svar frá leiguíbúðinni enþá, er samt búin að borga leigugjaldið fyrir leigusamingnum, svo það kemur allt í ljós.

Jæja hafiði það bara gott í bili og skemmtið ykkur núna í prófunum.


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 14:27:44 / dreymandi

Æii

Þetta er fín síða til að koma skilaboðum á framfæri :)

 Ég er búin að fá íbúð í Sönderborg í Danmörku, flyt núna í haust og þá verður bloggað aðeins meira hér :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 09:45:48 / dreymandi

síðasta sinn

 

Ég er hætt að blogga það les þetta hvort eð enginn bæó


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 16:26:42 / dreymandi

Hugsanir

Ég var búin að skirfa geðveikt mikið um hugsanið þegar ég ætlaði að afrita textan og ýtti alveg óvart bara á 'c' en gleymdi 'Ctrl' takkanum, svo það þurkaðist allt út :(

Held að ég geti ekki skrifað það aftur, því ég eiginlega men ekki alveg hvað ég var að tjá mig um.

Ég er búin að horfa á 4 seríuna af Friends og er alveg að deyja yfir Chandler persónunni. Hann er bara svo sætur og skemmtilegur, ef þessi persóna væri til í alvörunni myndi ég vilja hitta hann ;).

Ég er að fara í Kerfisfræði í HÍ í haust, búin að sækja um og allt. Mamma og Pabbi vilja samt að ég fari í HR, en ég á ekki það mikinn pening. Þau ættu nú bara að vera ánægð yfir að ég er loksins búin að ákveða mig.

Ég var að lesa allar bloggfærslur sem ég hef skrifað og þær eru fyrst alveg geðveikt þunglyndar eins og ég hef bara skrifað blogg í þunglyndiskasti, en síðan verða þær glaðari og fjall minna um tilfiningar mínar. mér finnst þær færslur betri.

jæja munniði að kjósa hér til hliðar stelpur :)

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 09:29:31 / dreymandi

Gleðilega Páska

Sælt veri fólkið.

Ég vona innilega að þið hafið notið þess að vera í smá fríi frá skólanum og nýtt tíman vel. :)

Ég skráði mig í leikfimi og finnst það rosalega gaman málið er samt meira að stilla þessa vekjara klukku réttt, misti af tímanum í gær því ég stillti vekjaraklukkuna kol vitlaust. Ég verð rosalega endurnærð af svona leikfimi.

Ég var að velta því fyrir mér að halda upp á afmælið mit núna í enda apríl eða í maí. Þið fáið að ráða með að kjósa hérna til hliðar, annað hvort 28 Apríl eða 12 Maí. Þið hafið frest til 20 Apríl til að tjá ykkur, það er alveg leyfilegt að svindla, en ég efast nú um að þið gerið það.

Þetta er nóg í bili reynið nú að kjósa :D  


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.03.2007 00:13:08 / dreymandi

"Allways Look on The Bright side of life"

 

Er þetta nógu gott fyrir þig freyja mín???

 

Hehe, Ég er búin að eiga hálf yndislega viku, í rauninni hefur ekkert gerst engin öskrað á mig ekki neit.

Fann veskið mitt en það var búið að stela símanum úr því, löggan villl ekki kæra og simfyrirtækið neitar að gera e-ð nema það sé kært, dálítil hringa vitleysa. En veskinu sjálfu var ekki stolið, né neit sem var inn í því, sem er í sjálfu sér kaldhæðinslegt, því þetta veski var mun meiri peninga virði heldur en blessaði síminn, ég er nefninlega svo dugleg í að kaupa alltaf ódýrasta síman :D

 Uppáhalds liturinn min er Gulur,  Svo ég keypti mér gullt egg til að hengja upp heima, sem páskaskraut.

 Ég fór í smá gönguferð í dag, gekk framhjá svona heilsubúð, ákvað að líta inn og sjá hvað væri í boði, þetta leit allt ljómandi út en var í aðeins of dýrari kantinum. Mig langaði nú samt í sólberjasaft, appelsínu og sesamstykki.

Ég er búin að reyna að hringja í svona gell sem sér um heilsu rækt í teknósport á morgnana en hún svarar aldrei þegar ég hringi og ætla að skrá mig, reyni aftur á morun og ef það vrkar ekki, þá eru þetta bara örlög :).

Þetta er þá nóg í bili elskurnar, reyni að skrifa jákvæðara næst :) 


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 14:25:09 / dreymandi

Verulega slæm helgi.

 

Þetta var reyndar vinnuhelgi svo hún var þegar búin að fá nokkur mínusstig fyrir en hún byrjaði.

Fór í Bíó á föstudagskvöldið á franska mynd sem heitir Hors de prix Íslensk þýðing var okur, Þetta var reyndar frekar góð mynd. Sem sagt góð byrjun á helgi. Ég hringdi síðan í Mörtu eftir bíóið til að athuga með AHansen en hún svaraði ekki, síðan hringdi ég í Kaju og það var sama sagan þar. Endaði með að fara heim og sofa, Sigrún hringdi reyndar en þá var það orðið of seint.

Vaknaði klukkan 7 um morgunin og dreif mig í vinnuna, næturvörðurinn var búin að baka, svo ég losnaði við mesta baslið þar, en átti samt að baka aðeins meira. Ég kláraði allarvörurnar sem voru á Lagernum, var rosadugleg. um 10 leitið bilaði Vísa kerfið, ég tel að búðin mín beri ekki ábyrgð á því að ég get ekki strauðað vísakort né að fólkið verður að fara í hraðbanka og þá verð ég að gefa þeim afslátt vegna bensín kostnaðar, það er bara gróft. Ef þú treystir svona rosalega á bankakerfin þá er það bara sjálfri þér að kenna. jæja síðan leið á daginn og ég var allatf að bíða eftir yfirmanni mínum til að ég gæti farið í mat, en hann birtist aldrei svo um fjögurleitið þegar ég var að leka niður vegna þreytu, þá kom Sigurgeir og bjargaði mér, sem sagt tók við af mér. Um fimm leitið var ég á leiðinni í fertugsafmæli Sillu, það var mjög gaman, Óskar nennti ekki með mér svo ég var eiginlega bara ein talandi við pabba og mömmu, Sturla var niðri að leika með hinum krökkunum, Freyja þurfti að passa og Gulla og Haukur fóru bara snemma. strax eftir þessa veislu fór ég í afmælið hennar Valborgar, ég þarf reyndar að taka fram að ég var með svona barmmerki framan á mér sem stóð á Betri álver Alcan, ég ætlaði ekkert að fara að leynda í einhverjum riflildum. Þetta byrjaði allt mjög vel, skemmti mér ágætlega, síðan mætta vvinur Valborgar sem er á móti Álverinu, hann rökræddi aðeins við mig, við komumst þó að þeirri niðurstöðu að við værum ósammála og slepptum þessu bara. Síðan satt ég ein og hundleiddist, Óskar lætur sig alltaf hverfa þegar vinir hans mæta, Marta var reyndar með mér og bjargaði því sem bjargað gat. Siðan kom einhver durtur með raut bindi og eipaði gjörsamlega á mig, vissi hvorki upp né niður, þetta var ekki að rökræða þetta var bara öskur og mótmæli í minn garð, honum finnst reyndar gaman að rífast en það finnst mér ekki og ég var engan vegin sátt við svona framkomu, svo það endaði með að ég öskraði á hann á móti og þá kom e-r ljótur gaur og ásakaði mig fyrir að ráðast á greyið drenginn. Marta kom mér reyndar hálft til bjargar og Valborg líka, Valborg útskýrði fyrir þeim að hún réði en ég væri stærri svo ég réði líka. Síðan kom e-r Beygla og spurði mig hvort ég gæti svarað e-ð um virkjanir, ég get það mjög takmarkað, því þaðer ekki Alcan sem sér um það mál heldur Landvirkjun, ég reyndi samt og þegar ég gat síðan ekki svarað henni þá vara bara aftur eipað á mig að ég vissi ekkert. Marta kom þá reyndar og fór að tala um réttindi kvenna í Álverinu, Karlar og konur fá sömu laun miðað við  sama starf og sarfsaldur, þá fór beyglan að tala um a konur eru alltaf með sanngjörn laun, sem er bara kjaftæði. Það er mjög mikill munur á launum kynjanna nú til dags, einustu rök hún kom með var verslun sem vinafólk hennar á og lögfræðistofa pabba síns, sagði síðan að konur kysi að vera með lægri laun því þær ynnu minna og kysu vera í láglaunastörfum, þetta er bara kjaftæði efa að það væru karla sem vildu vinna á leiksólum þá væru launin hærri það er bara einföldstaðreynd. Þetta kvöld endaði með því að ég fór heim alveg í rusli, Óskar skildi ekki neit enda held ég að honum hafi verið alveg sama.

Daginn efit fór ég á KFC með Óskari og var með veskið mit með keðjunni, síðan þegar ég var kominn upp í vinnu þá var ég ekki með neit veski lengur og það er gjörsamlega týnt og tröllum gefið. Lokaði kredit kortinu mínu og síminn minn var þegar dauður svo ég lokaði ekki á kortið en maður kemst ekki inn á það. Síðan kom Sigurgeir og bjargði þeim vinnudegi aftur, ég hata að vinna ein. og um kvöldið horfðum við systkinin á clerks 2 sem er með mjög vondu talmáli.

Þá er þetta bara allt komið :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.03.2007 09:42:42 / dreymandi

Sælar

 

Ég var reyndar buin að skrifa færslu en hún virkaði greinilega ekki, ætlaði að benda ykkur á heima síðuna mína.

http://www.mm.ir.is/nemendur/2007v/263238/index.html

Endilega skoðið hana er alltaf að bæta inn nýjum hlutum á þetta og endlega látið mig vita af stafsetningavillum, þetta er nefninlega skólaverkefni.


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 11:26:11 / dreymandi

Álverið

Álverið lokar eftir 10 ár, eða þeir eru að minnsta kosti búnir að selja það fyrir þann tíma. um 1200 manns miss vinnu sína fólkið yngra en fimmtugt finnur mjög líklega aðra vinnu, en hinir munu eiga aðeins erfiðara með það.

Fólk er líka alltaf að miskilja mengunina, það er til dæmis ekki mengun úr álverinu heldur gróðurhúsalofttegundir. Svifryk eða hvað sem það nú heitir sem er hjá holtinu er úr Reykjavík, líka stór miskilningur. svifreykurinn sem kemur úr reykjavík (frá bílum það er að segja) nemur um hundruð tonn, en svifrykið úr Álverinu nemur um 70 tonn og það er mjög erfit fyrir það að komast inn í bæin, og ef það gerist mælist það svo lítið að fólk tekur ekki eftir því. Ef þið takið eftir svona hvítu skýi að koma úr álverinu er það vatnsgufa frá Steypuskálanum, ekkert hættuleg. Síðan er fólk að kvarta yfir 36 metra háum ramagns staurum, það eru ramagnsstaurar út um allt land, Ég var í í Alvöru að taka fyrst eftir þeim um daginn það er að segja þeim sem eru hjá Álverinu. Ástæðan fyrir því að þessir staurar eru ekki teiknaðir inná myndir sem sýna stækkun álversins er sú að þeir eru ekki enn búnir að ákveða hvar á að setja þá. Mér finnst Álverið engin sjónmengun, þetta hefur alltaf verið þarna, verið rosalega spenandi.

Ég veit að þetta er eknnski tilgangslaust blog, en ég verð bara að koma fólki í skilning um allan þennan miskilning sem er í gangi, svo ef þið eruð með einhverjar spurningar eða staðreyndir afhverju það á ekki að kjósa með Álveri látið mig þá vita. Því það er alltaf gott að leiðrétta miskilning, en ef svo að þetta er ekki miskilningur þá þarf ég kannski að hugsa mál mitt, samt örruglega ekki ég il að pabbi haldi vinnunni ;) 


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 15:26:49 / dreymandi

Ég að tjá mig

Ég er hafnfirðingur, reyndar ekki gaflari en ég hef búið í hafnarfirði lengst af öllum stöðum.

Svo ég ákvað að gerast hafnfirðingur. Sem stoltur Hafnfirðingur þá styð ég þetta fallega Álver okkar og skil ekkert í þessum rugludollum sem vilja að það fari. En þetta er bara mín skoðun svo ekkert taka þessu neit inná ykkur.

Þetta Álver er Atvinnuskapandi og það er alltaf gott að haf nóg af vinnu :)

Ég las grein um dagin í Víkufréttum, greinin fjallaði um það að við kjósum okkur bæjarstjórn/ríkisstjórn til að taka ákvarðanir fyrir okkur, en síðan lætur t.d bæjastjórnin í Hafnarfirði bæjarbúa sína um kosningu stækkun Álvers, þar sem Álverið var búið að fá leyfi fyrir auknum gróðurhúsaloftegunda útblæstri, Álverið á þessa lóð sem stækunin á að vera á. Bæjarbúar eru svo margir með kolrangar upplýsingar, svo þetta er bara mesta rugl.

Ég er í tómu tjóni með þessar stjórnmála kosningar næsta vor, mér finnst eins og allr þessir flokkar eru að skíta upp á bak sér, veit ekkert hvað ég á að gera, enda öruglega með að skila inn auðu.


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Klukkan